Póstlisti
Skráðu þig á netlistann og fáðu sendar fréttir
Loftaplötur, eða “filigran” plötur eru 6 sm. þykkar plötur sem notaðar eru í milligólf og toppplötur í húsum. Þessar plötur koma að hluta í staðinn fyrir hinn hefðbundna undirslátt, þar sem steypt er yfir þær í endanlega þykkt plöturnar. Í þessum plötum eru engu að síður neðri járnbendingin, 6sm. af steypuþykktinni og þær rafmagnsdósir, hvort heldur það eru ljósadósir, tengidósir eða halógenbox. Að neðan eru plöturnar tilbúnar undir sandspörtlun, svo mikill tímasparnaður hlýst af. Kostir1. Styttri byggingatími2. Lægri byggingakostnaður3. Einfaldari byggingamáti4. Minni mótasmíðiNotkunEinbýlishús, par- og raðhús, fjölbýlishús og iðnaðarhús.Uppbygging og samskeytiPlöturnar eru 6 sm. þykkar og í þeim er komin neðri járnbending plötunnar. Burðarþolshönnuður ákvarðar járnbendingu. EfnislýsingÍ plötunum er C35 steypa. Allt bendistál uppfyllir kröfur B500C staðalsins. Tengidósir, ljósadósir og aðrar ísteyptar rafmagnslausnir eru af hefðbundinni gerð.AfhendingSmellinn loftaplötur eru afhentar á framleiðslustað á flatvögnum.
Hafðu samband við sölumenn okkar í síma 412 5400, eða sendu póst á smellinn@bmvalla.is og fáðu frekari upplýsingar.
1. Hafðu samband!
2. Tilboð og hvað svo?
3. Verkframvindan
Útveggir